Námið

Plié býður upp á metnaðarfullt dansnám þar sem gleði, fagmennska og einstaklingsmiðaður stuðningur fara saman. Við leggjum áherslu á vandaða kennslu, jákvæða upplifun og að hver nemandi fái tækifæri til að vaxa á sínum eigin forsendum.

Árangur nemenda úr Plié

Plié listdansskóli var stofnaður árið 2012. Þrátt fyrir ungan aldur skólans hafa fyrstu kynslóðir nemenda þegar útskrifast og nokkrir þeirra haldið áfram í framhaldsnám við virta dansskóla og háskóla erlendis.

London Studio Center

“Ég heiti Ísabella Sól og stunda nám í BA (Hons) Professional Dance Performance – Musical Theatre við London Studio Centre í London.

Ég stundaði dansnám hjá Plié í sex ár, þar af fjögur ár á afreksbrautinni Plié X. Á þeim tíma fékk ég kennslu í fjölbreyttum dansstílum, meðal annars Lyrical, Ballet, Acrobat, Jazz og Contemporary. En árin mín hjá Plié kenndu mér ekki aðeins að verða betri dansari — heldur einnig hvað það þýðir að vera góð fyrirmynd.

Hjá Plié var alltaf lögð áhersla á að öllum liði vel, að nemendur styðji hvert annað, trúi á sjálfa sig og fái að vera nákvæmlega þau sjálf. Stuðningurinn sem ég fékk frá bæði kennurum og samnemendum hafði gríðarleg áhrif á sjálfstraustið mitt og gaf mér þann kjark og trú á sjálfa mig sem ég þurfti til að taka næstu skref í dansinum.

Plié hjálpaði mér einnig ótrúlega mikið í undirbúningi fyrir háskólanám í dansi. Þar lærði ég mikilvæga grunntækni sem hefur reynst mér afar vel hér úti í London, til dæmis balletttækni og anatomy. Þar sem ég var á afreksbrautinni æfði ég mjög mikið samhliða fullu menntaskólanámi, sem kenndi mér aga, skipulag og tímastjórnun.

Afreksbrautin var frábær undirbúningur fyrir krefjandi dansnám, þar sem við fengum vandaða kennslu í öllum þeim stílum sem voru kenndir. Það var greinilegt hversu mikil vinna og umhyggja lá að baki öllu starfinu hjá Plié, og alltaf var hugsað út í þarfir hvers og eins nemanda. Ég var einnig í keppnisliði Plié, sem var bæði krefjandi og lærdómsríkt. Sú reynsla kenndi mér að vinna undir pressu, nýta tímann minn vel og leggja mig alltaf fram.

Námið mitt í dag er mjög krefjandi, dagarnir eru langir og dansað frá morgni til kvölds og ég veit að undirbúningurinn sem ég fékk hjá Plié hefur hjálpað mér gríðarlega mikið að takast á við það.

Skólastjóri Plié, Elva Rut, hjálpaði mér einnig mikið í umsóknarferlinu. Hún útskrifaðist sjálf úr Bird College í London og hefur alltaf verið mikil fyrirmynd fyrir nemendur skólans. Hún, ásamt öðrum kennurum Plié, hefur ávallt verið einstaklega stuðningsrík og hjálpsöm. Þegar ég var að sækja um skólana var ég ekki alveg viss um að ég væri tilbúin að flytja frá öllu því sem ég þekkti, en kennararnir hjá Plié hvöttu mig áfram og studdu mig í gegnum þessa stóru ákvörðun.

Ég gæti talað endalaust um allt það sem Plié hefur kennt mér og gefið mér. Án þeirra hefði þessi vegferð mín einfaldlega ekki verið möguleg.”


The Performing Arts Depot

“Ég heiti Júlía, ég er 17 ára og er í dansnámi í London. Mig langar að segja hversu ótrúlega þakklát ég er fyrir Plié og hvernig tíminn minn þar hefur hjálpað mér að komast inn í skólann hér úti. Ég fékk tækifæri þar til að bæta mig mikið sem dansari og manneskju. Ég átti mjög erfitt með að trúa á sjálfa mig og var mikið að draga mig niður, en tíminn minn í Plié hjálpaði mér að komast yfir það og byggja upp sjálfstraust.

Allir kennararnir eru yndislegir og skapa svo góðan og öruggan stað til að læra og vaxa. Ég eignaðist einnig mjög góðar vinkonur í Plié sem skipta mig miklu máli.

Ég er núna flutt til London í frekara nám og finn daglega hvað grunnurinn frá Plié hefur hjálpað mér mikið að vaxa sem dansari. Ég fékk mjög góðan grunn í ballet, lyrical, jazz og Acro sem hefur hjálpað mér ótrúlega mikið í skólanum sem ég er í núna, The Performing Arts Depot. Við fengum kennslu um líkamann hjá Plié, þar sem var kennt gott og hollt fæði og hvernig maður beytir sér rétt í dansi án þess að slasast. Plié kenndi mér líka að túlka dans, sýna tilfinningar og nota svip, sem hefur hjálpað mér að verða sterkari dansari og skerast út í prufum/sviði. Ég hef mjög mikinn áhuga á dansi og það er allt Plié að þakka, mér leiddist aldrei á æfingum og mætti oft fyrr eða var lengur á æfingu útaf mér leiddist heima.

Það er svo margt mikilvægt sem Plié hefur gefið mér. Ég er mjög þakklát fyrir að mamma hafi sent mig á fyrstu æfinguna mína í Plié 2018 og er ótrúlega þakklát fyrir allt sem skólinn og kennararnir hafa gert fyrir mig og Plié verður alltaf mjög stór partur af minni dansferð.”


Bird Conservatoire - sumarskóli

Tinna Björt og Lísbet Jenný, nemendur úr Plié hafa fengið skólastyrk til að sækja sumarnámskeið við Bird College. Einnig fengið verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í klassískum ballet á námskeiðunum.

ARDA - sumarskóli

Tinna Björt fékk skólastyrk á sumarnámskeið ARDA á Move It dans ráðstefnunni.

Danskeppnir

Plié listdansskóli hefur tekið þátt í alþjóðlegum danskeppnum frá árinu 2019. Frá þeim tíma hafa nemendur skólans unnið fjölda verðlauna bæði í undankeppnum og á alþjóðlegum úrslitum.

Gestakennarar

Frá stofnun Plié hefur það verið markmið okkar að veita nemendum kennslu sem stenst alþjóðlegan samanburð. Mikilvægur hluti af þeirri sýn er að fá reglulega til okkar gestakennara og danshöfunda erlendis frá, sem miðla þekkingu sinni, reynslu og nýjum sjónarmiðum til nemenda okkar.

Með því að vinna með ólíkum kennurum fá nemendur tækifæri til að kynnast mismunandi kennsluaðferðum, dansstílum og vinnubrögðum sem auka bæði tæknilega færni þeirra og listrænan þroska. Slík reynsla undirbýr þá jafnframt fyrir áframhaldandi nám, keppnir og atvinnulíf í dansi, þar sem hæfni til að aðlagast ólíkum kennurum og vinnuaðferðum er afar mikilvæg.

Í gegnum árin hafa fjölmargir virtir gestakennarar komið til Plié, þar á meðal Rebecca Davies, Jessica Jones, Liam Swattridge, Ashley Jade og Lauren Montero. Á haustönn 2026 bætist Tee Lily í hóp öflugra gestakennara sem koma að kennslu hjá Plié.

Við leggjum mikla áherslu á að nemendur okkar fái reglulega tækifæri til að læra af fremstu sérfræðingum í greininni og þannig njóti þeir kennslu sem er í takt við það besta sem gerist á alþjóðlegum vettvangi.